18.04.2012 12:53

grillið


Síðasti fundur vetrar er í dag síðasta vetrardag.

Gott er ef aðstoðarfólk hefur möguleika á að koma með

kv Abba og Stína

22.03.2012 14:58

Við ættlum einungis að borða í Apríl :o)

Næst hitumst við 3. apríl, þá verður boðið upp á fyltar pönnukökur.  Gestir eru velkomnir en þeir þurfa að borga 1000 kr fyrir sínar veitingar. 

Sennilegast mun vorgrillið vera á síðastavetradag, miðvikudaginn 18. Apríl. Í Húsi frítímans.

kv Stjórnin

22.03.2012 14:57

sumar ferðinn í grófum dráttum, birt með fyrirvara um breytingar

Farið verður frá Sauðárkróki upp úr 13:00 föstudaginn 1 júní


Borðaður verður kvöldmatur á Hótel Selfossi um kvöldið eftir að við höfum komið okkur fyrir á hótelinu og slappað af. Við erum búin að biðja um að fá matseðla svo hver og einn getur verið búinn að ákveða hvað hann ættlar að borða þá um kvöldið og við lendum ekki í að þeir sem fá matinn sinn fyrstir verði fyrir löngu búnir með matinn áður en þeir sem fá matinn sinn síðastir fá hann í hendurnar. Eftir mat verður slappað af og höfð kósý stund.


Morgunmatur verður borðaður á hótelinu áður en lagt verður af stað í óvissudag til Sólheima í Grímsnesi. Þar stefnum við á að borða hádegismat og eyða tíma frá 11 - 15/16


Svo förum við heim á hótel, hvílum okkur vel, puntum okkur og mætum í þriggja rétta kvöldverð.


Kvöldið verður með svipuðu móti og kvöldið á undan, eftir vilja hvers og eins.


Á sunnudeginum verður morgunmatur borðaður á hótelinu, pakkað saman og trillað út í rútu. Ef hugur er í mannskapnum um að fara í Kringluna verður farið þangað og þar eytt eitthverjum klst og svo lagt af stað heim á leið. Hádegismatur verður í höndum hvers og eins þann daginn.


Heimkoma fer alveg eftir því í hvernig stuði hópurinn er í.


Verðið á ferðinni í heildarpakkanum fer vonandi ekki yfir 36.000 miðað við okkar útreikninga og uppgefnar tölur.


Gott væri ef hægt væri að fá upplýsingar um hverjir reikna frekar með að koma með í ferðina

1-3 júní 2012 á Suðurlandið fyrir 15. apríl 2012

  • 1
Flettingar í dag: 6
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 77
Gestir í gær: 24
Samtals flettingar: 188756
Samtals gestir: 57426
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 02:41:10